Varmalistar í risíbúð og opnu vinnurými

Brimsalir, Ólafsfirði

Það er alltaf gaman að sjá hvernig varmalistarnir nýtast í ólíkum rýmum. Hjá Brimsölum á Ólafsfirði hafa Ida Semey og Bjarni Guðmundsson valið þriggja lagna BM3 varmalista fyrir bæði íbúð og opin vinnurými.

Brimsalir eru einstakur staður þar sem fólk kemur til að vinna, skapa og dvelja – með fjörðinn og fjöllin allt í kring. Íbúðin býður upp á notalegt og rúmgott umhverfi fyrir gesti, en vinnurýmið er bjart og opið með plássi fyrir allt að átta vinnustöðvar.

Þau sáu sjálf um uppsetninguna á varmlistunum og sýna hér vel hvernig BM3 getur fallið snyrtilega inn í rýmið. Varmalistarnir sameina hitun og gólflista í einni lausn, taka lítið pláss og skilja veggina eftir lausa fyrir húsgögn o. fl.

Lægri kostnaður við upphitun

Hjá Brimsölum hafa varmalistarnir bæði lækkað kostnað við upphitun hússins og á sama tíma skilað meiri hita inn í rýmin. Það er einmitt það sem við viljum sjá – hagkvæmari upphitun án þess að fórna hitanum.

Við hjá Hitalausnum erum sérstaklega ánægðir með að sjá varmalistana komast svona vel til skila í Brimsölum.

Lista- og fræðimannadvöl

Vinnurými

Share the Post:

Related Posts