
EasyClean LST vörulínan var hönnuð í samstarfi við bresku heilbrigðisþjónustuna (NHS) og helstu þjónustuaðila hjúkrunarheimila sem annan valkost í stað miðstöðvarofna, gólfhita og fleira.
Þar sem um er að ræða algerlega lokaðan gólflista, er hann einfaldur í uppsetningu og umfram allt auðveldur í þrifum. Þar sem engin op eða rimlar eru fyrir skaðlegar bakteríur að komast inn og fjölga sér, nægir einfaldlega að strjúka af honum við þrif. Engin hulstur eða hlífar sem þarf þarf að fjarlægja, engin sérstök hreinsunarteymi.

Högg- og öryggispróf
Á geðdeildum og hjúkrunarheimilum sem sinna einstaklingum með erfiða hegðun, skiptir mótstaða gegn skemmdum miklu máli við val á búnaði.
Þetta myndband, tekið á hjúkrunarheimili áður en íbúðin var afhent, sýnir vel hversu mikið álag ThermaSkirt EasyClean þolir – án þess að skemmast.
Enginn ofn nær að sameina sambærilega endingu og auðveld þrif, ásamt fallegri hönnun og plásssparnaði sem ThermaSkirt býður upp á.
Og ekkert gólfhitakerfi stenst samanburð við stýranleika, þægindi í uppsetningu, viðhaldi og sveigjanleika sem fylgir ThermaSkirt kerfinu.
Hjúkrunarheimili og umönnun
Með vaxandi fjölda aldraðra og einstaklinga með þroskaskerðingu sem þurfa aukna umönnun – hvort sem er heima hjá sér eða í sérhæfðum umönnunarúrræðum – er EasyClean hitakerfið tilvalin lausn til að tryggja hreint, þægilegt og öruggt umhverfi fyrir notendur þjónustunnar.
Kerfið fæst í fjölbreyttum stílum sem líkjast hefðbundnum gólflistum, og veitir hitalausn sem er viðhaldslítil, hreinleg og orkusparandi – án þess að taka veggpláss eða skapa hættu á að hrasa um.
- Þétt við veggi og gólf
- Lágmarkar hreyfingu á lofti – dregur úr sýkingarhættu
- Engin sjáanleg rör, lokar eða festingar
- Lágur yfirborðshiti– öruggt við snertingu
- Sveigjanlegt, aðlögunarhæft og auðvelt í viðhaldi

Hvernig virkar þetta?
ThermaSkirt er framleitt úr álblöndu sem leiðir hita allt að fimm sinnum betur en stál.
Hitinn dreifist jafnt um rýmið skapar hlýlegt og notalegt andrúmsloft, líkt og með gólfhita – en þar sem ThermaSkirt er yfir gólfi, bregst kerfið við á örfáum mínútum og hentar öllum gerðum gólfefna og bygginga.
ThermaSkirt tengist beint við hefðbundin hitakerfi og varmadælur og uppfyllir allar nauðsynlegar prófanir og öryggisvottorð.
- Hraðvirkt ofnakerfi
- Tengist beint við eldri ofnalagnir
- Sporöskjulaga rör mynda einstaklega grannan og nettan prófíl
- Hraður viðbragðstími
- Virkar með hitaveitu, varmadælum og öllum öðrum tegundum vatnshitakerfa















Hvernig er þetta sett upp?
ThermaSkirt er hannað með handlagna einstaklinginn í huga.
ThermaSkirt er sett upp sem staðgengill hefðbundinna gólflista og fæst í lengdum allt að 6 metrum, sem gerir kleift að klæða flesta veggi með einum einföldum kafla. Einkaleyfisvarin „push fit“ tenging tryggir skjótan og auðveldan frágang.
- Settu upp sjálfur eða fáðu fagmann – bæði í boði
- Einföld „push fit“ tenging
- Engin lóðun, þéttiefni eða lím
- Tengist beint við hefðbundið lagnakerfi
- Hentar öllum gólfum og gólfefnum sem er
Meira pláss
ThermaSkirt losar veggina við hefðbundna ofna og skapar þannig meira nýtanlegt rými. Þar sem engir plássfrekir ofnar eru til staðar skapast meira pláss fyrir húsgögn eða innréttingar, þú getur því endurhugsað rýmið frá grunni. Þar sem ThermaSkirt myndar ekki ryk né litamismun, líkt og ofnar gera, þá endast skreytingarnar þínar lengur.
- Skapar dýrmætt gólf- og veggpláss
- Minnkar ryk í andrúmslofti
Stýringar og snjalllausnir
ThermaSkirt virkar eins og venjulegir ofnar og er því auðvelt að samræma við núverandi snjallstýringar og heimilisbúnað, eins og snjallhitastilla og sjálfvirkar lausnir.
- Samhæft við öll helstu stýringarkerfi – t.d. Hive, Nest o.fl.
- Snjallsíma og Wi-Fi stýring í boði
- Hefðbundinn ofnaloki
- Góður valkostur í stað hefðbundinna ofna

Virkar með
