ThermaSkirt e er orkusparandi innrautt rafmagnshitakerfi með hitaþráðum, hannað til að líta út eins og hefðbundinn gólflisti. Með því að sameina varmagjafa og gólflista í einni lausn spararðu uppsetningarkostnað, losar um vegg- og gólfpláss, bætir útlit rýmisins og dregur úr orkunotkun.

ThermaSkirt fæst í ýmsum stílum og útfærslum og hentar jafnt í nýbyggingar sem og við endurbætur.

Enginn hitaveita?
Ekkert mál.

Rafmagnshitun hentar þar sem hitaveita er ekki til staðar.
Lág orkuþörf gerir listana hentugri en rafmagnsofna sem dæmi. Einnig tilvalið fyrir ný heimili

Þar sem sífellt meiri raforka kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum, getur rafhitun einnig hjálpað til við að draga úr kolefnisfótspori bygginga. Þegar rafmagnshitun er komin í notkun, uppfærist hús sjálfkrafa yfir í lágkolefnisupphitun samhliða því sem orkukerfið sjálft „grænkar“ – án raskana eða viðbótaraðgerða.

Prófílar

Með aðeins 20 mm (3/4″) dýpt líta ThermaSkirt gólflistarnir út eins og hefðbundnir gólflistar og veita glæsilegt yfirbragð sem eykur fegurð heimilisins.

Hvernig virkar þetta?

Í samstarfi við einn af reyndustu og virtustu hitatækniframleiðendum Evrópu hafa DiscreteHeat þróað einstakt hitakerfi þar sem sérhannaður hitagjafi er festur aftan á geislunarplötu sem líkist hefðbundnum gólflista.

Þessar gólflistaplötur eru einfaldlega sagaðar í réttar lengdir og settar upp með einangrandi festingum við veggi herbergisins.

ThermaSkirt-e er tengt við venjulegt 220/240V rafmagn og stýrt með hitastilli – þú ræður hvenær það er kveikt og slökkt. Þetta gefur þér nákvæma stjórn á hitastigi og orkunotkun, sem hjálpar til við að halda rekstrarkostnaði í lágmarki.

Þegar kveikt er á ThermaSkirt hitnar framhliðin og sendir út geislahita líkt og gólfhiti – en þar sem kerfið er fyrir ofan gólf bregst það hraðar við og herbergið hitnar á örfáum mínútum í stað klukkustunda.

Hvernig er þetta sett upp?

Þegar rafvirki hefur lagt fyrir rafmagni þá getur þú eða iðnarmaður klárað uppsetningu með aðstoð ítarlegra leiðbeininga sem fylgja.

Meira pláss

ThermaSkirt losar veggina við hefðbundna ofna og skapar þannig meira nýtanlegt rými. Þar sem engir plássfrekir ofnar eru til staðar skapast meira pláss fyrir húsgögn eða innréttingar, þú getur því endurhugsað rýmið frá grunni. Þar sem ThermaSkirt myndar ekki ryk né litamismun, líkt og ofnar gera, þá endast skreytingarnar þínar lengur.

Eldvörn og öryggi í fyrirrúmi

Ólíkt hefðbundnum veggofnum er ThermaSkirt-e búið einstökum, sjálfstýrðum hitagjafa sem ofhitnar ekki – jafnvel þótt eitthvað þekji hann. Þetta útilokar þörfina fyrir hitaöryggi (thermal fuse), sem annars getur valdið bilunum eða viðhaldsvandamálum, og – það sem mikilvægast er – kemur í vegfyrir eldhættu ef eldfim efni eins og pappír, föt eða sængurfatnaður leggjast yfir listann.

Stýringar og snjalllausnir

ThermaSkirt virkar eins og venjulegir ofnar og er því auðvelt að samræma við núverandi snjallstýringar og heimilisbúnað, eins og snjallhitastilla og sjálfvirkar lausnir.

Virkar með

Hafðu samband og kynnu þér málið