ThermaSkirt H₂O er orkunýtið gólflistakerfi fyrir hitaveitu, varmadælur, rafmagnskyndingu o. fl. sem hannað er í útliti hefðbundins gólflista. Með því að sameina tvo þætti í einni vöru spararðu bæði uppsetningarkostnað og dýrmætt gólf- og veggpláss – auk þess sem rýmið fær fallegra útlit og orkunotkun minnkar.

ThermaSkirt fæst í ýmsum stílum og útfærslum og hentar jafnt í nýbyggingar sem og við endurbætur.

Hvernig virkar þetta?

ThermaSkirt er framleitt úr álblöndu sem leiðir hita allt að fimm sinnum betur en stál.

Hitinn dreifist jafnt um rýmið skapar hlýlegt og notalegt andrúmsloft, líkt og með gólfhita – en þar sem ThermaSkirt er yfir gólfi, bregst kerfið við á örfáum mínútum og hentar öllum gerðum gólfefna og bygginga.
ThermaSkirt tengist beint við hefðbundin hitakerfi og varmadælur og uppfyllir allar nauðsynlegar prófanir og öryggisvottorð.

Prófílar

Með aðeins 20 mm (3/4″) dýpt líta ThermaSkirt gólflistarnir út eins og hefðbundnir gólflistar og veita glæsilegt yfirbragð sem eykur fegurð heimilisins.

Hvernig er þetta sett upp?

ThermaSkirt er hannað með handlagna einstaklinginn í huga.
ThermaSkirt er sett upp sem staðgengill hefðbundinna gólflista og fæst í lengdum allt að 6 metrum, sem gerir kleift að klæða flesta veggi með einum einföldum kafla. Einkaleyfisvarin „push fit“ tenging tryggir skjótan og auðveldan frágang.

Meira pláss

ThermaSkirt losar veggina við hefðbundna ofna og skapar þannig meira nýtanlegt rými. Þar sem engir plássfrekir ofnar eru til staðar skapast meira pláss fyrir húsgögn eða innréttingar, þú getur því endurhugsað rýmið frá grunni. Þar sem ThermaSkirt myndar ekki ryk né litamismun, líkt og ofnar gera, þá endast skreytingarnar þínar lengur.

Stýringar og snjalllausnir

ThermaSkirt virkar eins og venjulegir ofnar og er því auðvelt að samræma við núverandi snjallstýringar og heimilisbúnað, eins og snjallhitastilla og sjálfvirkar lausnir.

Virkar með

Hafðu samband og kynnu þér málið